Thá erum vid komin til Kúbu, í 30 stiga hita og sól. Vid komum í gaer eftir langt flug, tar sem millilent var í Gander á Nýfundnalandi og tók flugi alls um 10 tíma. Svo var lent í Varadero og vid tók 2 tíma keyrsla inn í Havana. Bordudum vid á hotelinu og forum frekar snemma ad sofa.Í dag var svo farid í skodunarferd tar sem farid var af stad kl 9. Keyrdum vid um borgina og skodudum m.a. vindlaverksmidju sem var mjog skritinn vinnustadur. Tar sem starfsmennirnir reyndu ad selja manni vinlda undir bordid. Annars fekk madur Serbiu flashback her og allt er mjog hrorlegt. Husin eru varla malud eda voru tad kannski fyrir byltingu, 1959. Og ríkid á allt bíla, hús, veitingastadi, hotel. Já, allt. Fátaektin er mikil og allir eru ad reyna ad snapa ser aukapening. Med betli eda tipsi.Her svifur andi Castro og Che Guevara alls stadar yfir og eru teir adal hetjurnar, greinilega. Annars er farid med okkur túrista um i bomull tví 60% tekna koma fra túristum. Vid fáum alla ávexti og nautakjot en almúginn ekkert af slíku. Og svo er um marga adra hluti. Vid skodudum lika slodir Hemmigway i dag og drukkum Mohijto coktail, eins og hann, á barnum hans tar sem hann fekk innblasturinn af sogunni Gamli madurinn og hafid. En tetta er frabaer upplifun og vid getum ekki bedid eftir ad rolta um midbaeinn. Reyndar er svo mikid af Islendingum ad tad er ekki tverfotad fyrir teim naestum 600 manns. Adeins odruvisi en i Serbiu !!
Kúba 2:
Okkur finnst eins vid seum stodd i biomynd, en vitum ekki fra hvada tima eda hvar. Her svifur spanskur andi yfir ollu og med blondu af USA ahrifum sidan um 1950. En tetta er skemmtileg blanda af gomlum heimum.I gaer forum vid i midbaeinn og konnudum markadinn sem annad einkaframtakid sem er leyft her. En undir strongu eftirliti. Hitt einkaframtakid er, Paladar, heimaveitingahus med max 12 stolum. Og tvi er fylgt strangt eftir ad stolarnir seu ekki fleiri en 12. Á markadnumvar haegt ad kaupa ymsa listmuni og slikt. Malverk, ymis litil hljodfaeri og utskurd og skrautmuni. Sigrun nadi adeins ad fá utrás fyrir kaupmattinn tar enda rennur tetta ad hluta til folksins, ekki bara til ríkisins. Heimaveitingahúsid prófudum vid í gaerkvoldi og vid vorum sex í hopnum. Vid Sigrun, Gunna og Ásmundur og Gudrún og Unnsteinn. Tad voru bara til 3 skammtar af svinakjoti, hinir urdu ad fa kjukling. En tarna var típískur Serbíumatur sem Tjodverjar hefdu verid himinlifandi med, mikid magn, en engin sósa fyrir Sigrúnu. Vid hofdum tad a tilfinningunni ad vid vaerum ad borda matinn fra fjolskyldunni. En tad er vonandi ekki svoleidis.Annars vatt ser ad okur svartur madur i midbaenum sem keyrdi turista um i hestvagni. "Vad eitir tu?" spurdi hann og sagdi svo hátt og skýrt "Ingolfur Arnarson". Audvitad eru Íslendingar audtekktir allsstadar og bunir ad syna heimamonnum hverjir eyda almennilega af peningum . Vid fórum ekki med kauda i tetta skiptid.Annars er tessi stadur paradís fyrir mig 30 stiga hiti en engin sol. Tannig ad tetta er alveg baerilegt. Ég fekk ad visu magakveisu í gaer og var half slappur frameftir nóttu en er tokkalegur i dag. Drekk bara adeins meiri bjor. Í dag fórum vid í midbaeinn aftur og var tá heljar skrúdganga sem allskonar hópum sem spiludu og donsudu salsa og samba. Alveg ferlega litskrúdugt og flott ad sja . En tetta er í tilefni 486 ára afmaeli Havana borgar. Vid fórum líka ad skoda gomlu forsetahollina hans Batista sem Castró boladi fra voldum 1959. En hann gerdi hollina ad byltingasafni. Tar sem Che Guevara faer adalheidurinn. En hollin er glaesileg og i tessum gamla spaenska stíl sem nánast oll hús eru byggd í.En borgin er draumaborg karlmanna í rómantískri ferd med konum sínum . Tví her eru engar búdir sem haegt er ad versla í. En nóg af kaffihúsum med hinum ýmsu ómótstaedilegu kokkteilum. Tannig ad tad er stoppad reglulega og torstanum svalad i hitanum.
Kúba 3:
Núna er stóra systir búina ad koma kommenta- kerfinu i lag fyrir mig og takk fyrir tad. Enda er strax farid ad skamma mann. Ég sendi reyndar sms til allra en símkerfid er ekki alveg ad virka her, t.d. eru Ogvodafone símar óvirkir hér. GH hefur eitthvad misfarist í sendingum, sorry sis !En hér var haldin heljarins grillveisla á laugardagskvold fyrir Íslendingana í hótel gardinum og maettu 120 manns. Tad var opinn bar (frír) í 2 tíma fyrir okkur og fóru flestir bara nokkud vel med tad, en alltaf soldid riskí fyrir Íslendinga. Tetta var heilmikil sýning med donsum og song og skemmtum vid okkur vel.Á sunnudaginn fóru svo flestir Íslendingarnir af hótelinu og á strondina til ad vera restina af vikunni, en vid pontudum allan timann í Havana, sem betur fer. Enda ekkert sólbadsvedur.Á sunnudagsmorguninn fórum vid svo í skodunarferd í gamlan kirkjugard tar sem oll stórmenni Kúbu frá upphafi eru grafin. Tar eru alger listaverk enda eru tetta svona grafhýsi sem eru í eigu fjolskyldna. Tadan fórum vid í rommverksmidju og fengum ad smakka hinar ýmsu tegundir af rommi. Og komumst ad tví ad romm er ekki bara romm. Alls konar gerdir og sumar eingongu framleiddar fyrir leidtogann med skeggid og vini hans.Svo fórum vid á Havana Libre hótelid sem var byggt sem Hilton hótel fyrir byltingu og var tjódnýtt eins og allt annad í byltingunni. En Castró og félagar gerdu hótelid ad bakistod eftir innrásina í Havana 1959. Mjog skrýtid ad sjá og myndir af byltingarmonnum um alla veggi . Sídan gegnum vid á National de Cuba hótelid og fengum okkur drykk í gardinum tar. Tad hótel var midstod skemmtana í Karabískahafinu fyrir byltingu og flykktust fraegir Bandaríkjamenn tangad til ad skemmta ser.Svo gengum vid í gard sem heitir Coppelia og er fraegur fyrir ad vera í fraegri Kúbanskri bíomynd sem heitir "Súkkuladi og jardarber". En tarna er adallega seldur kúlu ís í hellig af litlum ísbúdum . En Castró ákvad ad ís vaeri eitthvad sem allir aettu ad geta veitt sér og framleidir ís sem seldur er í gardinum á spottprís. Tetta var samt frekar mikid sódalegt og menn skófu ísinn úr stórum fotum med skeidum sem skoladar voru í malningarfotum med verulega drullugu vatni. Tannig ad vid haettum ekki á ad auka á magaverkinn.Vid komum svo heim á hótel og reyndum adeins ad slappa af í hótelgardinum en ekki sást sólin.Endudum vid daginn med ad fara á veitingastad sem vid létum leigubílstjóra velja handa okkur. Tad gekk ekki vel, tví hann keyrdi okkur á fiskistad tar sem fiskurinn var svo steiktur og seigur ad Unnsteini fannst hann vera kominn í mat til mommu sinnar í Audsholti. Og lifandi tónlist sem var svo hávaer ad ekki var haegt ad tala saman. En vínid slapp samt til, tó svo ad ekki vaeri til hvítvín á fiskiveitingastadnum ( en so vott , tetta er nú Kúba).I morgun voknudum vid og saum til sólar, vei, vei ! Skelltum okkur í sundfotin og logdumst á bekk í gardinum en sólin skein í svona 10 mínútur tá dró fyrir og alltaf meir og meir tannig ad vid gafumst upp og fórum á markad nidri í bae. Tar vorum vid í svona 15 mín en tá hvessti mjog skyndilega og fór svo ad haugrigna og allir áttu fótum fjor ad launa . Fórum vid undir eitthvad skýli tar sem var seldur bjór í krana og hannserveradur í afsogudum rommfloskum. En bjórinn var alveg óaetur og leyfdum vid honum ad mestu og lobbudum í gegnum hverfi heimamanna og upp á National de cuba hótelid tar sem vid fengum samloku og gódan bjór. Á medan ringdi enn meira .
Kúbulok:
Þessi seinustu Kúbu skrif eru skrifum heima þar sem internet- samband var ekkert seinasta daginn á kúbu . Sennilega hefur Kastró ritskoðað póstana mína og lokað fyrir aðganginn minn, hver veit !!En næst seinasta kvöldið okkar á Kúbu ákváðum við að borða kvöldverð á Havana libre hótelinu, á 25. hæð. Fórum við með Guðrúnunum og Unnsteini og Ásmundi. Það var bara mjög fínt og flott útsýni yfir Havana. Og bæði til hvítvín og rauðvín til á staðnum sem er nú ekki alveg sjálfsagt. Eftir að máltíðinni lauk þá fórum við yfir á skemmtistað á þessu sama hóteli og hlustuðum aðeins á músik . Við Sigrún urðum eftir á staðnum og vorum ekki alveg tilbúin að fara heim og skelltum okkur svo á jassklúbb þarna í grendinni og var það alveg ferlega skemmtilegur staður og svona ekta "jazz-búlla". Þar voru greinilega miklir snillingar sem léku við hvern sinn fingur. Fórum við svo heim í leigubíl sem ekki var leigubíll. Því það kom bara aðvífandi strákur og sagðist vera taxi. Við skelltum okkur með honum og sat þá bara kærastan frammí í eldgamalli Lödu sem nánast var að hrynja. Bensín stybbuna lagði inní bílinn, klæðningin var horfin af hurðunum og svo opnaðist hurðin hjá Sigrúni í einni beygjunni. Þannig að okkur leist ekki beint á blikuna, en drengurinn skilaði okkur á hótelið og kærastan var himinlifandi með dugnaðinn í honum og fína bílinn þeirra. Já, þetta er aðeins öðruvísi.Seinasti dagurinn okkar rann upp og fannst okkur núna eins og það væri stofugangur hjá hjúkrunarliðinu í litla hópnum okkar. Allir gáfu skýrslu um svefn, lyfjainntöku og hægðir. Og þóttu þetta mikilvægar, eðlilegar og nauðsynlegar upplýsingar til að geta hafið daginn eðlilega. Til dæmis þurfti Sigrún að sofa í sófanum í herberginu því hún fær svo í mjöðmina á að sofa í svona hörðu rúmi (eða það segir hún allavega).Annars var alveg hrikalegur sjógangur á strandgötunni og gekk sjórinn langt upp á land og braut brimið á varnargarðinum við veginn. Það var algjört flóð á verstu stöðunum á götunni og þurftu bílarnir að sneiða hliðargötur fram hjá þessu. Þetta eru víst leyfar af óveðri sem var
hálfgerður fellibylur, Gamma, og gerði usla í Hondúras.Fórum við svo í skoðunarferð, í næstum 3 tíma, um miðbæinn í hestvagni þar sem leiðsögumaðurinn var prófessor í ensku en hætti því til að vinna við túrsimann. Því þar er möguleiki á að drýgja tekjur sínar með tipsi. En næstum allir kúbverjar stóla á það að einhverju leiti. Enda fá þeir bara vasapening hjá Kastró til að eyða. Spurðum við kúbumanninn í þaula um lifnaðarhættina og svaraði hann skilmerkilega. Ljósmæðurnar voru hrifnar af því að þarna fá mæður 1-1,5 árs barnsburðarleyfi á launum og geta feður líka fengið hluta af því. Einnig vildi hann meina að Kúbu menn mættu ferðast að vild til annara landa en stundum væri erfitt fyrir þau að fá visa inn í önnur lönd vegna þess að allir halda að þau ætli sér bara að gerast flóttamenn. En á Kúbu er allt frítt eins og skólar, læknaþjónusta, aðgerðir og tannlæknaþjónusta. Og engir biðlistar. Hann sagðist eiga vin í Danmörku sem kæmi oft til Kúbu og léti alltaf gera við tennurnar í sér þar fyrir lítinn pening. En það er að sjálfsögðu á svörtu þar sem allt svoleiðis á að renna til leiðtogans. Að skilnaði við þennan ræðna félaga okkar sem hitti okkur svo aftur um kvöldið til að heilsa upp á okkur á veitingastað sem hann benti okkur á, þá fengum við heimilisfangið hans og netfang. Þar sem hann sagði að skemmtilegast væri að leigja íbúð ef maður kæmi aftur til Havana og ætlum við að gera það næst !!Heimleiðin gekk svo vel og og tók ekki nema 8 tíma með stoppi í Kanada, því við fengum góðan meðvind. Eftir situr alveg sérlega skemmtileg ferð, með skemmtilegum ferðafélögum.
Kúba 2:
Kúba 3:
Kúbulok: